live the dream

*adda*

28.03.2008 20:53:35 / adda

MOVED!!!

já þið meinið það...ég kann nottla ekkert á þetta blogcentral shit lengur svo ég er farin á www.addasoffia.bloggar.is sjáum hvað það endist lengi haha!
ciao ! 8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 01:58:02 / adda

allt að verða CRAZY!

úffúffúff....það er sko BANDBRJÚLET veður hérna í borginni! ég bíð bara eftir að litli polo komi fljúgandi inn um gluggann! svo er heiðmar farinn út á sjó og ég alein í kotinu skíthrædd við veðrið hehe...æji stundum er hjartað voða lítið hehe;) en þessi vika er annars búin að vera gubb...í orðsins fyllstu merkingu. ég fékk ælupest þegar ég kom heim á sunnudagskvöldið og er búin að vera með rosaverki í mallakút og í bakinu síðan þá...rosalega gaman eða hitt þó að vera ein heima og lasin! ég ætla samt að reyna að pilla mér í wörkið á morgun ef ég næ að sofna eitthvað! en í annað...helgin var svona líka hressandi :D ég var að sminka fyrir jólatónleikana hjá mr BO HALL. við og tvær aðrar áttum að sjá um kórinn og hljómsveitina á meðan aðrar aðeins reyndari í bransanum tóku "celebin". eeen að sjálfsögðu endaði það þannig að ég og arna vorum baksviðs að púðra nebbana á stebba hilmars, eyfa, helga björns og auðvitað sjálfum kónginum BO (já nú erbófinn væntanlega orðin græn af öfund hehe...segi sona). og svo fór ég í eftirpartý með öllu þotuliðinu á eftir. ekki að ég hafi verið að tjilla með þeim við barinn samt hehe. ef ég væri þið þá myndi ég ekki vera mjög bjartsýn að fá jólagjafir frá mer, hehe, ég á eftir að kaupa eigilega allar og hef kannski tvo daga í það. annars var ég komin í þetta rosa jólaskap en ég held að það hafi fokið út í veður og vind með veikindunum og þessu blessaða roki úti. jæja ég ætla að fara að snúa mér a hina hliðina og reyna að sofna....eða skella bara greys í tækið;) góða nótt adda veika í storminum

» 6 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 22:08:09 / adda

either you got it or you don´t

halló kalló..eigum við eitthvað að ræða það hvað er langt síðan ég bloggði hehe. það er bara búið að vera crazy að gera og svo bara nennti ég því ekki, ég veit dugnaður.

punktablogg...jess

  • það er alveg óhugnalega stutt í jólin og ég hlakka svoooo til. var að skrifa niður í gær hvað ég þarf að kaupa margar jólagjafir. ekki nema 14 en ég hef pottþétt gleymt einhverjum.
  • ég er búin að vera ógilega lasin um helgina með vibba hálsbólgu og hita...er í vinnunni núna og er ekki mjög hress :(
  • ég kláraði skólann í lok okt, gekk rosa vel, fékk verðlaun fyrir bestu myndina (jeij me) og var bara nokkuð sátt með það enda gekk mér best í því prófi.
  • Fór á útskriftardjamm með skólanum og kápunni minni var stolið! :( sérstakt þetta fólk í rvk! það var brúðarþema hjá okkur þannig að ég endaði á því að labba kápulaus í risakjól með slör um allan bæ...töff! hehe
  • fékk bestu bestu og skemmtilegustu aukavinnu í heimi...í Make Up Store í Smáralind :) held að ég sé alveg komin á rétta hillu þarna.
  • ég er farin að hlakka svo til að fara til ak um jólin, liggja bara og kúra og hitta alla aftur..ekkert stress bara rólegheit og kósýheit um jólin :) ég kem á þorláksmessumorgunn svo þið getið byrjað að hlakka til hehe.
  • það er nóg að gera hjá mér fram að jólum, er að vinna á fullu í das bank og í makeupstore, er líka að fara að hjálpa til við að mála fyrir Jólatónleika hjá Bó Hall 8 og 9 des...fæ reyndar ekki að púðra Bó sjálfan en hljómsveitina hans og eitthvað pípol hehe.
  • Heiða kom um helgina, sá hana í 10mín en náði að knúsa hana og selja henni fullt af flottu drasli ;) Tinna mín er að koma núna um helgina...vonandi getum við haft 7 stóla djamm;)
  • er komin í nettan júlefíling...fór í IKEA um daginn og keypti eitthvað jóladót...föndraði aðventukrans og alles ;)
  • Svo langaði mig að óska Írisi Huldu til hamingju aftur með litlu prinsessuna og Örnu Ýr til hamingju með prinsinn...vona að eg geti knúsað þau bæði um jólin :)
  • Er búin að horfa á fyrstu 9 þættina í nýjasta Grey´s Anatomy...þessi sería er ekkert að gef hinum eftir finnst mér:) nú bíð ég bara spennt þangað til á föstudaginn þá get ég náð í þátt nr tíu vííí. Við Heiðmar erum líka búin að horfa á Næturvaktina...hahaha þessir þættir eru bara brandari sko! 

jæja nenni ekki að bulla meira í ykkur, hlakka til að sjá alla á ak um jólin :)

blessjú

Adda


» 9 hafa sagt sína skoðun

06.10.2007 19:33:58 / adda

ertaðdjókímér??

bonjorno! allir að deyja úr spenningi yfir nýju bloggi hehe ;)

það er bara búið að vera svo CRAZY að gera að ég veit ekki hvað ég heiti lengur. ég er alltaf að vinna frá 9-5 er svo í skólanum 19-23 og þarf líka að læra slatta. en þetta er bara gaman. en ég er að spá í að púlla bara punktablogg á þetta:

  • Berti bróðir, Alla, Sigrún og Soffía, mútta,pabbi og Halla komu öll í heimsókn til okkar í lok sept. það var ekkert smá gaman að hafa þau, sérstaklega stelpurnar, ég hafði ekki séð þær svo lengi. Svo sætar með kisann sinn :) sigrún og soffía
  • við Heiðmar keyptum okkur geggjaðan skenk í IKEA um síðustu helgi. Við ætluðum fyrst að láta senda hann heim en ákváðum svo að tékka hvort hann kæmist ekki í POLO. og að sjálfsögðu "smellpassaði" hann. ég þurfti reyndar að sitja frammí með hnén uppí höku en það er aukaatriði hehe ;) við vorum allavega gáfulegri en einhver eldri hjón sem voru að kaupa sér kommóðu í IKEA. það var búið að setja hana saman og þau voru að reyna að troða henni innum hurðina á jeppanum sínum, skúffurnar voru alltaf að opnast og þetta var voða klumsy...vá hvað við hlógum. góð saga.
  • Tinna mín kom í óvænta heimsókn til mín á föstudaginn. ég ætlaði svo að gera helling með henni, en tók svo uppá því að verða lasin á laugardaginn svo að við lágum bara heima uppí sófa og horfðum á Dr.Phil og átum Doritos hehe. og við horfðum líka á wedding singer, þvílík snilldarmynd alltaf! en takk fyrir helgina tinna mín :*
  • já ég er búin að vera á fullu í skólanum og það er alveg ógeðslega gaman. ég verð að monta mig aðeins, djók, en hérna eru 2 myndir af Betu en hún var moel hjá mer í smokey. fyrst var það bara venjulegt dökkt en svo breytti ég henni í smá crazy ;) og svo var Erna model í brúðarförðun hjá mér. Þessar myndir eru samt geðveikt lélegar, ég tók þær úr símanum mínum. T.d þá er erna með nokkur stök gerviaugnhár og er með fjólublátt og gyllt...eeen það sést ekki.
beta smokey

beta smokey

beta fashion smokey

beta fashion/crazy smokey

erna brúðar

erna brúðarförðun

  • svo ég heldi áfram að tuða um skólann (sorry það er bara svo gaman) þá eru kennarnarnir okkar rosa duglegir að taka okkur með í verkefni. ég fór með sóley í eitt um daginn og það var rosa gaman, einhver myndataka fyrir eitthvað þýskt blað. ég var nú ekki mikið að gera, bara naglalakka og greiða hárkollur. svo fór ég í annað verkefni í gær með lindu kennara, einhver myndataka uppí árbæjarsafni. hún þurfti svo að fara og skildi mig eina eftir að græja hár og laga make up. það var bara rosa gaman. svo þegar ég var búin þar þá hringdi sóley í mig og bað mig um að koma uppí kringlu og hjálpa til við tískusýningu því það var verið að opna topshop. það var bara geggjað. rosa stress og læti og allt í rugli hehe..bara gaman. bankadjobbið fölnar alveg við hliðina á þessu, verst að ég fæ ekkert borgað fyrir þetta strax, en ég læri samt svo mikið af þessu að það er bara jákvætt :)
  • við Heiðmar ákváðum að dekra aðeins við okkur og splæstum í miða á Andrea Bocelli 31.okt, á afmælisdaginn hans Heiðmars :) það kostaði að vísu smá penge, en við erum búin að vera svo dugleg í skólunum okkar að það er allt í lagi að leyfa sér smá ;)
  • tölvunördinn ég var fyrst að læra núna að downloada :) hehe, og að sjálfsögðu var það fyrsta sem ég náði í nýjasti Grey´s þátturinn :D og viku sienna náði ég svo í þátt nr tvö. ætli ég nái svo ekki í þátt nr 3 á morgun, hann er sýndur úti í kvöld;) ég bara alveg elska þessa þætti sko!
  • eins og ég sagði áðan þá tók ég uppá því að verða lasin umhelgina, fékk eitthvað ógeðis kvef og hálsbólgu og var bara ógilega slöpp :S ég held að ég sé ekki að höndla loftið í borginni hehe ;)
  • við heiðmar áttum svo afmæli 30.sept, mér finnst svo skrýtið að við séum búin að vera saman í ár, úff hvað tíminn líður hratt! reyndar var þetta bara stóri afmælisdagurinn því Nóel Atli frændi heiðmars varð 1.árs, Svenni hennar heiðu varð 21.árs og Íris og Gunni áttu líka fmæli :) allt að gerast, og til hammó með það allir ;)

(bætt við seinna)

beta

hérna er svo betri mynd af Betu skvís;) stal henni af myspacinu hennar...vona að það sé ok;) 

guð ég man ekkert hvað ég ætlaði að segja meira

KVITTA SVO ALLIR! fyrst ég var að blogga hehe;)

knús

Adda :haha:

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 15:21:45 / adda

...

það kemur blogg um helgina... ;)


» 12 hafa sagt sína skoðun

05.09.2007 10:35:27 / adda

don't wanna be good at something I don't like

jójó, kannski kominn tími á blogg, komin pressa á mann og alles ;) hehe

en það er maaargt búið að ske hjá kópavogskrúttunum síðan síðast :

  • ég byrjaði að vinna í kaupþing í hamraborg. verð að viðurkenna að þetta er ekki jafn spennó og á ak, ég sé hvað ég endist þarna.
  • ég byrjaði í skólanum á mánudaginn og hólí smólí hvað það er gaman! fjúff...LOKSINS er ég að gera eitthvað sem mér finnst gaman! :D
  • það besta er líka að hluti af námsefninu mínu er að skoða tískublöð sem er ekkert nema snilldin! love it
  • þetta verður samt hörkupúl, heimsvinna hverja helgi, ein ritgerð og fyrirlestur um hana og öll prófin í sömu vikunni, dag eftir dag. en ég vonandi redda þessu og 7,9, 13 næ öllu!
  • við fengum kitið okkar í skólanum í gær (kit er sem sagt taskan með öllu snyrtidótinu og tilheyrandi) fengum geðveika svarta tösku á hjólum og fullt af dóti. m.a fengum við 15 MAC augnskugga í pallettu...svo þegar ég fór að skoða þá þá komst ég að því að ég átti 7 af þeim! sem er samt bara gott, ég má skipta þeim...alltaf er maður að græða hehe 8)
  • sérstakt fólkið hérna í borginni, ég afgreiddi kall í gær, svona rúmlega sextugur. það væri ekki merkilegt nema í miðri afgreiðslu í gær segir hann við mig: nei hvað svakalega ertu með fínar neglur!   ég: haaa..já, takk.     hann: eru þetta gervi?   ég: nei, þetta eru bara mínar með svona geli ofaná.    hann: já, en sniðugt, rosalega eru þær fallegar.     ok, er þetta eðlilegt? hvenær fóru gamlir kallar að spá í nöglum og hvenær fóru karlmenn að taka eftir nöglum?  hehehehehehhe
  • Leibbi kom í heimsókn til okkar um helgina, ekkert smá gaman að hafa kappann í heimsókn. við fórum með honum í eitthvað stórundarlegt afmæli á laugardaginn hjá frænda hans, alveg óboðin. þar var fullt af undarlegu fullu fólki og kona með brjóstin alveg uppúr hehe. á sunnudaginn fórum við leibbi frekar þreytt í IKEA meðan Heiðmar var heima að læra, keyptum einhverja vitleysu og sofnuðum næstum í einhverjum stólum hehe. um kvöldið borðaði ég svo besta take away sem ég hef smakkað, frá austurlanda hraðlestinni, frekar dýrt, en alveg þess virði mmmmm.
  • elsku tinnan min er að koma um helgina og ég hlakka svo til að hitta hana að ég er að springa! vildi samt að ég gæti hitt gellurnar mínar í kvöld og verið með í dinnerpartý. þið ímyndið ykkur bara að ég sé þarna hehe!
  • við Heiðmar erum svo rosa menningarleg að okkur langar geðveikt á Andrea Bocelli 31.okt, sem er btw afmælisdagurinn hans Heiðmars. Það kostar bara augun úr og annan fótinn af, en það er spuring hvort við dekrum við okkur í tilefni dagsins og höldum um leið uppá að við séum búin að vera saman í ár 30.sept...shiiii hvað tímin líður hratt!
  • ég er svo geðveikt úldin í dag...eins og reyttur köttur

bara man ekki meira í bili

skylda að kvitta ALLIR!

knús til allra á ak :*

farin í mat

kv. adda :haha:


» 15 hafa sagt sína skoðun

22.08.2007 17:20:36 / adda

desperate housewive

jæja enn og aftur kominn tíi á bloggson
þá er maður fluttur úr hreiðrinu og kominn í borgina. flutningarnir gengu bara vel. þegar við komum í íbúðina þá var bara einn gamall ikea lampi á stofugólfinu sem Guðrún og Arnór gáfu okkur, skúringafata, tuska og gúmmíhanskar. ég verð að viðurkenna að ég fékk nettan hnútsa í mallan þá, en það gekk fljótt yfir. maður er bara að fatta núna hvað maður er orðinn voðalega grown up hehe. sem betur fer kom rúmið okkar og rosa töff blái sófinn okkar um kvöldið svo það varð aðeins heimilislegra. svo var bara brunað á Mr McDonald´s og fengið sér einn hammara fyrir nóttina.
mútta og pabbi komu svo daginn eftir og þá var að sjálsögðu brunað í IKEA (sem er orðið mitt annað heimili) og verslað eitt stykki eldhúsborð og fleira dót fyrir nokkra þúsundkalla. það var eins gott að mutta og pabbi komu og hjálpuðu okkur því þetta blessaða eldhúsborð var þyngra en góðu hófi gegnir og hefði aldrei komist í litla POLO, enda 180 á lengd danke.
tengdó kom svo i heimsókn á þriðjudeginum og mamma og pabbi komu aftur á laugardaginn svo að það er buið að vera gestagangur næstum alla daga nema 3 hehe. svo eru amma og afi að koma alla leið frá Hólmavík á etir til að kíkja á okkur áður en þau fara til útlanda gömlu hjónin.
annars er þessi tími hérna fyrir sunnan búin að ganga alveg ótrúlega vel...kallinn fyrir ofan okkur er einu sinni búinn að kvarta en það var þegar pabbi var að bora upp reykskynjarann kl hálf níu um kvöldið. okkur þótti hann nú heldur fljótur að kvarta undan okkur, en svona er það víst að búa í blokk...you gotta keep it down ;)
annars er lífið mitt búið að einkennast af IKEA og Bónusferðum (kemur á óvart ha) og Desperate housewives. ég byrjaði að horfa á fyrstu seríuna á sunnudaginn og er búin með hana og byrjuð á seríu tvö ;) Heiðmar er byrjaður í skólanum svo að ég byrja alltaf á því að skutla honum á morgnana,fer svo heim og lúlla aaaðeins lengur. svo set ég í þvottavelina eða fer í bónus eða eitthvað hehe.
ég fór að heimsækja bróður pabba á sunnudaignn og hann býr einhversstaðar lengst í burtu. svo þegar ég var að keyra heim þá var ég eitthvað annars hugar og tek vitlausa beygju. ég hugsa bara með mér æji wodda hell, skiptir engu ég kemst örugglega heim. ég var komin í eitthvað nýtt hverfi og vissi ekkert hvar ég var, allt í byggingarkrönum og læti. en þá sé ég vin minn Bónus og ákvað að skreppa inn og kaupa eitthvað í matinn. svo þegar ég kem að kassanum þá bara týni eg allt upp og segi góðan daginn, ekkert mjög hátt samt. nema hvað að afgreiðslustúlkan (greyið;) heyrði eitthvað vitlaust og hélt að ég væri þýsk (wodda??) og segir hátt og snjallt á þysku 1197 kr. ég náttla bara horfi á hana stórum augum, rétti henni kortið og segi "gjörðu svo vel". svipurinn á greyinu var alveg priceless hehehe. ég veit samt ekki hvort ég á að vera móðguð, mér finnst ég nú ekki mjög þjóðverjaleg að sjá?? 8|
 
ég var voða dugleg i gær, fór í ljós og út að hjóla í rigningunni hérna í dalnum, voða kósý, það er allt i göngustígum hérna og því voða næs að hjóla eða labba um. 
 
hmmm...ég er komin með vinnu í kaupþing í hamraborg í kópavogi, mer lýst bara vel á það,ég byrja ekki fyrren á mán eða þriðjudag, en það verður fint að fara að gera eitthvað annað en að vera heima og ryksuga og fara í bónus hehe.
svo byrja ég í skólanum 3.sept, ég er komin með smá hnútsa í mallann yfir því en ég verð bara að vona það besta og standa mig. pínu óþægilegt að þekkja engann þarna en ég verð bara að vera voða kammó og kynnast gellunum þarna ;) 
 
jæja..ég er komin með krampa í lófann á þessu skrifi.
ég ætla að fara að vekja heiðmar,eg held hann hafi sofnað yfir kröfuréttinum.
 
svo er það bara að kveikja á desperate housewives og skríða undir teppi. það þýrðir ekki annað þegar maður er í fríi og það er feit hlussu rigning úti. það er alveg satt, það er ALLTAF rigning í reykjavík. ekki dropa rigning-hlussu rigning! 
 
kiss og knús til allra á Akureyri :* sakna ykkar allra!
 
oooooog kvitta svo ALLIR!
 
kv. Adda :haha: 

» 17 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 14:04:21 / adda

fisherman´s woman

góðan og blessaðan!  adda ofurbloggari hér.. ;) hvað segiði um að ég dusti nú rykið af þessari blessuðu síðu og bloggi smá.

það er alveg hellingur búið að gerast siðan síðast. við Heiðmar erum komin með fína 3 herbergja íbúð í Lindasmára í Kópavogi i bleikri þriggja hæða blokk;) ég er reyndar ekki búin að sjá hana að innan nema bara á myndum en mér sýndist hún vera fín :) svo nú geta allir (eða kannski ekki alveg allir) komið og gist hjá okkur þegar þið farið suður, því það er nóg pláss og bara gaman að fá heimsókn:)

það er farið að styttast skuggalega mikið í að við flytjum, ekki nema 2 vikur þangað til. það er ekki laust við að það sé kominn smá hnútsi í mallann 8| en þetta verður bara gaman held ég.

ég verð að vinna í bankanum í vetur, veit ekki alveg hvar ennþá, en það skýrist í mánuðinum. svo komst ég inn í EMM school of make up:) 8 vikna förðunar og stílistanám, kennt 4 sinnum í viku:) svo stelpur, ef þið eruð að flytja suður eða búið already þar let me know því mig vantar módel í skólann í vetur ;) Heiðmar er svo að fara í lögfræði í HR, nei hann ræðst ekkert á gerðinn þar sem hann er lægstur, en vonandi á hann bara eftir að fíla sig í botn þarna ;)

á mánudaginn fyrir viku bættist svo við nýr lítill fjölskyldumeðlimur hjá okkur. nei það er ekki hundur eða barn, bara burri :) já ég verslaði eitt stykki polo handa okkur, lítinn, sætan og rauðan :)

Annars er ég búin að gera voða lítið annað í sumar en að vinna í das bank. ég skrapp reyndar suður með múttu að versla potta og pönnur og dót í búið :) bara gaman. svo fór ég vestur á Hólmavík að heimsækja ömmu & afa og fór í fertugsafmæli hjá systur pabba og kíkti með Andra frænda á Drangsnes um kvöldið í útilegu & gítar stemmara.

Heiðmar er búinn að vera á sjó síðan 4.júní fyrir utan einn dag sem hann kom heim á milli, þannig að þið getið rétt ímyndað ykkur að ég sé farin að sakna hans. Hann kemur heim á þriðjudagskvöldið eða miðvikudagsnóttina og ég bara get ekki beðið! við ætlum svo að vera voða rómó og sæt og fara bara tvö í útilegu um versló, nennum ekki að vera í brjálæðinu hérna hehe ;) svo förum við bara að pakka niður öllu draslinu okkar og fara suður. ég er ekki enn að ná því að ég sé að fara eftir tvær vikur! það er alltof stutt. ég á auðvitað eftir að sakna allra og sakna þess að vera hérna, en ég held að þetta verði bara þroskandi og gaman. þó það verði mikið að gera meðan ég er í skólanum þá reddast þetta alveg hjá okkur :) ég held að ég eigi samt eftir að sakna stelpnanna hans bróður míns mest, Sigrún María er að fara að byrja í skóla og Soffía Sunna er á þeim snilldar aldri þegar hún er að byrja að tala og svona. Hún er t.d í því að segja "Nei" og "jæja" þessa dagana. mamma þeirra ætlar líka að búa til barnalandssíðu fyrir þær svo ég geti fylgst með þeim :)

nóg af væli,hehe. hvað ætliði að gera um versló fólk? 8) á að vera í bænum eða fara eitthvað?

hmmm...

nothing left to say than KVITT my hoes :haha:

kiss&kram

Addos  8)

 


» 15 hafa sagt sína skoðun

18.06.2007 13:41:22 / adda

...og svo er bannað að prumpa upp við sviðið!

hehehe...tek undir þessi fögru orð Jónsa í svörtum fötum. eg sver að það er næstum skárra að hafa reykingarlykt.

þetta var í einu orði sagt snilldarhelgi! það var alveg æði að hitta alla aftur, sérstaklega stelpurnar mínar í 4H, sem kíktu i kósý hitting hjá mér á föstudagskvöldið. Á laugardagskvöldið var svo júbileringin og það var alveg magnað, hef bara sjaldan skemmt mér svona vel sko! ég verð reyndar að viðurkenna að litla hjartað mitt var voða viðkvæmt þetta kvöld og ég táraðist á miðnætti þegar við eins árs stúdentarnir tókum hvíta kollinn niður,hehe. og ég var næstum því búin að tárast aftur í gær þegar ég fór niðrí bæ að horfa á nýstúdentana marsera niðrí bæ, hehe, enda langaði mig, barböru og bjarney bara til að hoppa uppí rútuna til þeirra og fara að djamma með þeim.  

annars er crazy að gera hjá mér þessa vikuna, við erum á fullu að plana reunion hjá 86 árgangnum í Glerárskóla, hlakka ekkert smá til að hitta þau öll aftur ;)

ídda,bjarney og ég

íris, bjarney og ég-stal henni hjá írisi, hope it´s ok ;)

ég og hrabba

ég og hrabba-trúi varla að það sé ár síðan að þessi mynd var tekin! 

ég ætla svo að reyna að setja inn myndir þegar talvan hans Heiðmars er komin í lag.

Annars bara takk alle sammen fyrir geggjaða helgi! svo verður sko tekið á því aftur eftir 4 ár!! :haha:

 

kiss og kram

paddi 8)


» 15 hafa sagt sína skoðun

13.06.2007 00:53:28 / adda

ég er eins og..

Charlotte
 
You Are Most Like Charlotte!
You are the ultimate romantic idealist
You've been hurt before, but that hasn't caused you to give up on love.
If anything, your resolve to fall in love is stronger than ever.
And it's this feminine optimism that men find most appealing about you.


Romantic prediction: That guy you are seeing (or crushing on)?

Could be very serious - if you play your cards right!
 
http://www.blogthings.com/whichsexandthecityvixenareyouquiz/
 
Eins og hver í sex and the city ert þú?
 

» 4 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 23:04:50 / adda

it´s hard to be a big girl now...and big girls don´t cry

  • ég er ein og þá meina ég alein þessa dagana.mútta og pabbi eru í siglingu um miðjarðarhafið (smá öfund í gangi) á einhverju risarisa skipi. Halla sys er að fara til Spánar og elsku elsku elsku Heiðmar minn var að fara út á sjó áðan og ég sakna hans strax svoo mikið! sem betur fer fer hann sennilega bara einn túr í viðbót og þá er þetta búið. það er svo vont að vera án hans :(
  • ég verð að vinna í bankanum í sumar og lýst bar vel á það. ég hætti samt á glerártorgi í lok júní og þá fer ég í laaaangþráð sumarfrí til 16.júlí...mmm. ég ætla að reyna að skreppa eitthvað suður og kaupa eitthvað fínt dót í íbúðna okkar Heiðmars, sem við erum enn að leita að, en það kemur.svo verð ég að vinna niðrí bæ þangað til um miðjan ágúst.
  • oooog talandi um íbúðir, þá erum við að skoða íbúðir í rvk og ég veit vel að smekkur manna er misjafn og fól hefur mis mikið milli handana en halló! hvað það getur verið bara ljótt heima hjá fólki! td var einn með gólfmottu hengda upp í loftið, svona munstraða eins og fólk hefur undir borðstofuborðum hehe. og litirnir! ferskjubleikt klósett, limegrænt eldhús með brúnu gólfi og fínerí. svo er fólk heldur ekkert að laga til áður en það tekur myndir af íbúðinni sinni, ég sá eina og þar var bara snakk á borðum og kósý hehe ;) og sokkar í bala í sófanum.
  • svo erum ég, tinna og heiða og fleiri á fullu að plana reunion hká Glerárskóla 23.júní.þvílík snild sem það verður að hitta alla aftur, suma hefur maður ekki séð síðan í 10.bekk.
  • já, svo er ég að fara að júbilera 16.júní og ég hlakka ekkert smá til að hitta allar stelpurnar mínar úr 4H aftur og bara alla hina úr MA. ég bar trúi varla að það sé ár síðan ég útskrifaðist, rosalega líður tíminn. eða eins og ég segi ég verð orðin amma áður en ég veit af heheh ;)
  • annars er nóg að gera hjá mér núna, ég þarf að hringja út um allt fyrir okkut Heiðmar útaf einhverri þvottavél sem við ætlum kannski að kaupa og útaf bíl sem við erum að spá i. ég þarf líka að laga til í öllu húsinu, þvo þvottinn minn og setja í uppþvottavélina og hver veit nema maður grípi i kústinn og skúri aðeins ;)
  • ég var að horfa á framhaldsmynd mánaðarins á stöð 2 áðan, human trafficing. þvilíkur viðbjóður. hún er um menn sem ræna stelpurm, bæði börnum og uppúr og selja þær í kynlífsþrælkun. annað hvort kipptu þeir þeim bara upp af götunum eða þá að þeir lugu að þeim að þær væru að fara að starfa sem módel úti í heimi. mér varð bara óglatt. ef það væri eitthvað eitt sem ég myndi vilja að væri ekki til í heiminum þá væri það þetta.
annars bara kvitta allir!
Adda litla lonely  

» 8 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 20:04:36 / adda

veikur :(

já haldiði ekki að snillngnum mér hafi ekki tekist að ná mér í einhverja ógeðispest, hálsbolgu, beinverki og vibba. ég var orðin pínu slöpp í gær en svo vaknaði ég kl hálf sex í morgun alveg að drepast. þannig að ég er bara búin að liggja uppi rúmi hjá Heiðmari í dag og horfa á sjónvarpið. Guðrún systir hans var að koma með Nóel litlaí gær þannig að ég þorði ekki annað en að halda mer bara inni í herbergi í allan dag svo ég myndi nu ekki smita litla snúðinn. Ég fór svo heim þegar Heiðmar fór að horfa á leikinn,liverpool-ac milan. ég er svona rétt að vona að liverpool taki þetta svo hann verði nú ekki i fýlu í allt kvöld, hehe...segi svona ;)
ég verð samt að vera búin að ná mer fyrir helgina, því hún er alveg fullskipulögð hjá mér. Ég er að fara út að borða á föstudaginn meðnokkrum úr vinnunni eða þeim sem voru með mér í krulluliðinu ;) hehe, svo er verið að ferma Hjalta bróður Heiðmars á laugardaginn og svo er ég að fara í rosa afmæli hja Díönu workbuddy á sunnudaginn og hlakka ekkert smá til. svo ætla ég að sofa á mánudaginn..mmm, það verður gott að fá svona aukadg til að hvíla sig eftir helgina.
ég lét laga á mér hárið í gær og eg er bara orðin þokkalega sátt við það, það er dálíið öðruvísi en það hefur verið en það er bara gott að breyta til, annars væri ekkert gaman að þessu;)
svo fékk ég allt MAC dótið sem Guðrún keypti fyrir mig í köben, 3augnskuggar, 2 gloss og fleira dót :) kostaði sitt en var alveg þess virði, plús að þetta er miklu odyrara úti en her heima.
 
Jæja ég ætla að fara að þvo hreinsimaskann faman ur mér og þurrka á mér hárið, áður en Oprah og strictly confidential byrjar (sem eru btw snilldarþættir!!)
 
passiði ykkur á pestinni, hehe
 
kiss og kram
Adda lasarus :$ 
 

» 5 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 17:32:07 / adda

what´s he doing down there???

beckssbalsy.jpg

..og hvaða svipur er þetta?

Eru einhverjar California cooties á bibbanum hans eða?


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 15:44:00 / adda

there should be a holiday for girls like me

ég er ekki glöð í dag. ég fór í klippingu og hárið á mér er farið! alveg..bara bless bless. ég ætla að vera leiðinleg við alla sem koma í bankann í dag og eru með flott hár :( ég þoli ekki eþgar hárið á mér er ekki eins og ég vil hafa það! og svo er ég líka með brotna nögl! (I know real problems)

En annað...veit einhver um litla íbúð fyrir okkur Heiðmar í rvk í vetur á góðum stað og á reasonable price?;) endilega láta mig vita ef þið fréttið af íbúð!

ég er farin í fýlu

Adda

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 14:15:07 / adda

i´m your dramaqueen tonight

ég fékk skipun frá my secret fan um að ég ætti að blogga....þúst þessir aðdáendur alltaf að pressa á mann..nehh djók.

ég er í voðalegu stuði eitthvað í dag, með fiðring í mallanum og alles, en hef ekki hugmynd um afhverju 8)

ætla ekki allir að horfa á eurovision í kvöld? Nú bíða allir spenntir eftir því hvort hann Eiki bleiki komist áfram...sjálf hef ég ekki hugmynd, ég bíð bara spennt eftir að sjá hvernig fer. ég ætla að halda með ungverjalandi, geggjað flott lag sem er svolítið öðruvísi, alveg kominn tími á að fá eitthvað nýtt. http://www.youtube.com/watch?v=a7jRtYWPkzA

það er ekki rass....afsakið baun að gera í vinnunni. svo er ekkert útvarp hjá okkur nema útvarpið sem er frammi þannig að við erum búnar að þurfa að hlusta á óla palla á rás 2 í allan dag, og hann er bara búinn að spila Eurovision lög og megas.

um síðustu helgi fór ég til Sauðárkróks með bankanun að djamma (já það er víst hægt þar). það kom reyndar bara á óvart hvað það var gaman,(kannski afþví að við vorum búin að fá okkur aðeins...) við fórum á einhverja dægurlagahátíð þar sem allt "þotuliðið" var að skemmta; Bjöggi Hall, Friðrik Ómar, Regína Ósk og svo má ekki gleyma "aðalbandinu" "stórsveitinni" Von. hehe.ég móðgaði samt víst einhvern dyravörð, sagði honum að tvískiptur aflitaður hanakambur væri bara ekki inn lengur hehe. I just hope he learned a lesson ;) Við Hanna Rós komumst líka að því að Skagfirskar kellingar eru með þeim frekari í bransanum, þeim finnst það sko ekkert atriði að riðjast bara framfyrir mann í röðinni á klóstið. bitches!

annars verð ég hálffegin þegar þessi helgi er búin, fólk er gjörsamlega að fara yfirum í þessu kosningabrjálæði. ég er persónulega alveg skoðanalaus og hef þessvegna engan áhuga á því að horfa á fólk vera að rífast í sjónvarpinu, mér líður hálf illa að horfa á það. ætli ég verði nú samt ekki að fara og kjósa, svona fyrir suma ;) hehe

ég ætla líka að óska öllum sem eru annaðhvort óléttar eða nýbúnar að eiga til hamingju, þetta er eitthvað að ganga núna, mér finnst ég heyra á hverjum degi að einhver sé ólétt! sem er auðvitað bara æði!;)

ég ætla að enda þetta á gömlu eurovision atriði sem ég ætla að tileinka Höllu systur, mesta Eurovision aðdáanda á Íslandi á eftir Páli Óskari..passiði ykkur að hlægja ekki of mikið! http://www.youtube.com/watch?v=ZLmSC7UQ19s

KVITTA ALLE SAMMEN

knúses & kisses

Adda

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7